Synda Selur
Syndur sem Selur 

Skriðsundsnámskeið
2023

Næstu Námskeið

5. júní
Tveggja vikna morgun námskeið í Sundhöll Reykjavíkur
frá 5. til 15. júní. Tímar eru kl. 07:00 á morgnana, frá mánudegi til fimmtudags, alls 8 skipti

19. júní
   Tveggja vikna kvöld námskeið í Sundlaug Breiðholts 
frá 19. til 29. júní. Tímar eru kl. 18:00 á kvöldin, frá mánudegi til fimmtudags, alls 8 skipti

  Skrá mig á Skriðsundsnámskeið...


 Sundnámskeið og æfingar fyrir fullorðna 

Ef þú vilt læra að synda, læra skriðsund, synda hraðar, auka þol, styrk og liðleika, þá ættirðu að geta fundið eitthvað við þitt hæfi því Syndaselur býður upp á úrval námskeiða á höfuðborgarsvæðinu.

Aqua Fitness VatnsleikfimiGarpasund Sundæfingar,
Skriðsundsnámskeið og  Syndur sem Selur Sundnámskeið

Auk fyrrgreindra námskeiða eru í boði Einkatímar og Fjarþjálfun.

Syndur sem selur sundnámskeið er fyrir fullorðna sem eru óöruggir, ósyndir eða vatnshræddir. Viltu verða syndur sem selur og ná öryggi í vatninu?  Skelltu þér þá á sundnámskeið hjá Syndasel!Á sundnámskeiði hjá syndaselur.com

Þjálfun í vatni

Með æfingum í vatni þá ertu að fá mjög góða og alhliða þjálfun þar sem reynir á styrk, þol og liðleika þegar þú vinnur með mótstöðuna sem vatnið veitir þér. 

Mótstaðan virkar þannig að álag á helstu liði og liðamót er mun mýkra en við æfingar á þurru landi og því er þetta ákjósanleg þjálfun sem hentar flestum. 

Námskeið í boði veturinn 2022-2023

 (Ath. Tímasetningar námskeiða geta breyst)

Aqua Fitness Breiðholtslaug(innilaug)

Í Aqua Fitness vatnsleikfimi er unnið með mótstöðu vatnsins og einnig gerðar æfingar til að auka liðleika ásamt ýmsum styrktaræfingum þar sem m.a. eru notaðar Thera Band teyjur.

Tímar: Mánudagar og Miðvikudagar kl. 19:35

Skrá mig í Aqua Fitness...

Garpasund 

Í Garpasundinu virkjarðu flesta vöðvahópa líkamans og vinnur að meiri samhæfingu, styrk og úthaldi ásamt betri sundtækni á fjölbreyttum sundæfingum.

Garpasund Morgunæfingar
Sundhöll Reykjavíkur (innilaug)

Þriðjudagar og Fimmtudagar kl. 7-7:50

Garpasund Hádegisæfingar
Laugardalslaug (innilaug)

Þriðjudagar og Fimmtudagar kl. 12-13

Syndur Sem Selur
Sundhöllin v/Barónsstíg

Sundnámskeið fyrir ósynda/vatnshrædda 

Syndur sem selur

Fjögurra vikna námskeið þar sem kennt er á Laugardögum kl. 8:15 - 9:45.

Haldin eru nokkur námskeið yfir veturinn en fjöldi námskeiða fer alveg eftir því hvernig skráningar berast. Viljirðu komast á námskeið þá er um að gera að skrá sig því þannig eykurðu lýkurnar á að námskeið verði haldið fljótlega.


Skrá mig á Sundnámskeið...

Nánari upplýsingar um námskeiðin


AQUA FITNESS

Aqua Fitness er frábær líkamsrækt í skemmtilegum félagsskap og þægilegu umhverfi!

Leikfimi í vatni er mjög heillandi líkamsrækt þar sem þú átt mun auðveldara með að stjórna hversu mikið álag þú leggur á stoðkerfi líkamans vegna þess stuðnings sem vatnið veitir þér.

Í Aqua Fitness eru:

  • Styrktar- og þolæfingar þar sem unnið er með mótstöðu vatnsins. 
  • "TheraBand" þ.e. teyjur sem eru misjafnlega stífar. 
  • Aqua Fitness hanskar sem auka við mótstöðu vatnsins.
  • Áherslur eru á alhliða þjálfun með auknu þoli, styrk og liðleika. 

Nánar um Aqua Fitness...


GARPASUND
Sundæfingar fyrir fullorðna

Garpasund er alveg kjörið fyrir þig til að bæta almenna tækni og færni í sundinu. Auk þess sem sundþolið eykst við markvissar æfingar, þá verður einnig hraði og styrkur mun meiri!

ATH! Til að geta tekið þátt í Garpaæfingum þá þarf: 
Skriðsundskunnátta að vera til staðar 
(þ.e. að geta synt án hvíldar 400m skriðsund eða lengra).

  • Garpasund er mjög góð líkamsrækt þar sem þú æfir á skipulegan hátt og vinnur að bætingu í tækni, styrk, úthaldi og hraða.
  • Ef þú bara vissir hvað það er miklu skemmtilegra og árangursríkara að synda og æfa í góðum hóp heldur en að synda ein(n).
  • Ég skora á þig að prófa einn mánuð og ég er sannfærður um það að þú lítur sundið allt öðrum augum eftir það!

Nánar um Garpasundið...


SKRIÐSUNDSNÁMSKEIÐ

Skriðsundið er kennt alveg frá grunni og er meðal annars unnið með:

  • slökun og mýkt
  • leguna í vatninu
  • samhæfingu handa og fóta
  • tímasetningu öndunar
  • fótatök og takt
  • nýtni handataka
  • þolsund - hraðasund

Lauslega er litið á snúninga (veltu) við bakka, bringusund og baksund og jafnvel flugsund. 

Nánar um Skriðsundsnámskeiðin...


SYNDUR SEM SELUR
Sundnámskeið

Sundhöll Reykjavíkur 

Syndur sem selur  Fjögurra vikna námskeið þar sem kennt er á laugardögum kl. 8:15 - 9:45, alls 6.klst.

Þjálfunin er einstaklingsbundin og fer hver á sínum hraða að því markmiði að verða að lokum syndur sem selur. 

  • Þú lærir að slaka á og fljóta í vatninu. 
  • Þú lærir að fara úr því að fljóta í vatninu og að geta staðið upp á öruggan hátt.
  • Þegar það er komið byrjarðu að læra sundtökin og réttan takt í handa- og fótahreyfingum.
  • Þú lærir rétta öndun í takti við handa og fótahreyfingar.
  • kennari er með þér ofan í lauginni og aðstoðar þig eftir þörfum.

    Nánar um Sundnámskeiðin...


FJARÞJÁLFUN


  • Þú færð leiðbeiningar til að bæta tækni þína.
  • Þú færð æfingaáætlun sem byggist á núverandi getu þinni og markmiðum til að stefna að.
  • Þú færð 3 sundæfingar á viku sem sniðnar eru að þínum þörfum.
  • Reglulega færðu mismunandi test sem mæla framfarir svo hægt sé að uppfæra æfingaáætlun þína.

Skrá mig í Fjarþjálfun...


Umsagnir !

Hér geturðu séð hvað aðrir hafa sagt um námskeið syndasels.
Eða þú getur sagt frá því hvað þér finnst um námskeið sem þú hefur tekið þátt í.        


Segðu hvernig þér líkaði námskeið Syndasels

Það getur hjálpað öðrum að heyra hvernig þér líkaði námskeiðið hjá Syndasel. Segðu frá þinni upplifun og reynslu og hvernig þér hefur gengið :-)

New! Comments

Vertu í sambandi !